|
|
10.04.2007 10:20:08 / thordis
Sælar stelpur,
nú er komið að því að reyna að hittast á ungfrú rvk, sem
fer fram á broadway 12.apríl 
Hjördís ætlar að pimpa miða frá Elínu þannig að þær sem hafa
áhuga endilega commenta hérna fyrir neðan svo við getum kippt frá
miða fyrir ykkur.
kveðja,
Þórdís B
»
09.01.2007 11:39:29 / hjordis
»
07.11.2006 15:41:29 / Freyja
Allavega síðan  iss....
Er einhver fýlingur fyrir hitting?
Ætla einhverjar á Hr. Ísland?
Endilega segið mér fréttir... veit reyndar að Steina Dröfn er búin
að eignast erfingja, innilega til hamingju!
Sjáumst..
Freyja
»
24.07.2006 00:25:11 / Freyja
Hæ, hæ og takk fyrir síðast skvísur  Rosalega gaman að hitta
ykkur
Slúður og bankamál voru heitustu umræðuefni kvöldsins! hehe... En
mætingin mætti alveg vera betri! Stefnum á það næst!
Steina, til hamingju með bumbubúann
Kv. Freyja
»
20.07.2006 11:49:04 / hjordis
Jæja, þá er sumarið
loksins komið, sólin skín og allt í tómri
hamingju!
Hamingjan heldur svo
áfram því nú er komið að Ungfrúar grill-partýinu. ÞAÐ ER Á
MORGUN!!! ...Og það virðist ætla að verða sama brjálaða
mætingin og venjulega!
Við rétt slefum í það
að vera FAB 5! – hvað er þetta, stúlkur? Erum við Ásthildur
svona leiðinlegar að það nennir engin að mæta fyrist við komum.....
er það málið??? 
Það er svo aðeins búiðað breyta
planinu þar sem við vissum ekki hvort að við yrðum bara 3 eða
eitthvða svo við ætlum að sleppa grillinu og hafa bara
venjulegt partý sem hefst stundvíslega kl. 21:00 hjá
Ásthildi. Reynum nú allar að mæta snemma svo við höfum
einhvern tíma til að spjalla áður en við förum niður í bæ....
líka þú Brynja! 
En þeir sem eru búnir
að tilkynna mætingur eru:
Ásthildur (enda
partýið heima hjá henni svo hún kemst ekki upp með annað en að
mæta) Hjördís María, Þórdís
Björg, Steina, Fjóla (kemur seint)
Freyja kemst því
miður ekki! 
Hvað með
ykkur hinar?????? Nennið þið að skrifa í kommentin hvort að þið
komið eða ekki svo við höfum einhverja hugmynd um það hvað margir
koma.
Sjáumst í gleðinni á
morgun!
Dísa skvísa!

»
11.07.2006 14:38:54 / Asthildur
Jæja, þá er komið að hittingi okkur íðilfögru meyja! Ég,
Ásthildur, mun verða gestgjafi ykkar þetta kvöldið og varð
föstudagurinn 21. júlí fyrir valinu. Klukkan 18 er áætlað að
gleðskapurinn byrji og hvet ég allar til þess að mæta með eitthvað
á grillið. Við munum svo vera með sameiginlegt meðlæti og munum við
þá leggja í púkk fyrir því. Nú er um að gera að troða sig út af
grillmat, snakki, nammi og ekki síst áfengi... enginn dómari að
fara að glápa á rassabossana okkar núna, ónei! Þannig að það verður
bara sukk í hæsta gæðaflokki
En til þess að lista þetta niður í einföld atriði þá er þetta
það helsta...
- Partý
- 21. júlí
- Heima hjá Ásthildi Gunnarsdóttur
- Langholtsvegi 54, 104 Rvk.
- Tímasetning: á slaginu 18...
- Grill, djamm og djús...
Kv, partýstelpan...
»
04.07.2006 12:18:19 / hjordis
Sælar
skvísur ,
Hvað segið þið mér af
þessu partýi? Ásthildur..... er ekki bara spurning um að ákveða
dagsetningu með nógu og miklum fyrirvara þannig að fólk hafi tíma
til að taka daginn frá? Ég er allavegnana til í partý og mæti
pottþétt!
Annars gengur lífið
mun betur hjá mér þessa dagana og ekkert biturleikahorn sem þið
fáið að heyra núna. Lífið er dans á rósum and I am happy as
a HIPPO! (Og líkist
einum reyndar alveg skuggalega mikið líka hehehe! )
Ég var svo að segja
upp í vinnunni þar sem mín er bara að fara að setjast aftur á
skólabekk núna í haust. Jibbý..... B.S. gráða nr. 2 here I
come! Ég er semsagt að fara að klára
viðskiptafræðina núna. Þar sem ég tók viðskiptafræði sem aukagrein
með ferðamálafræðinni á sínum tíma þá fæ ég svo mikið af því námi
metið inn í viðskiptafræðina að ég er bara hálfnuð með B.S. gráðuna
nú þegar sem er alls ekki slæmt. Svo er það bara spurning um
að fara svo í masterinn í Ástralíu vorið 2008..... en það er seinni
tíma pæling.
En jæja krúttin mín,
ég ætla að kveðja í bili og við sjáumst vonandi fljótelga í
partýi.
Bless bless

Hjördís
María
»
16.06.2006 23:54:49 / Freyja
Þar sem e-mail kerfið á milli mín og Ásthildar virðist ekki virka
hef ég ekkert komist til að skrá mig inn  en þar sem ég hitti
hana í Smáralind á þriðjudaginn og Kringlunni á miðvikudaginn er
þetta komið í lag! Hmmm... tilviljun að hittast óvænt í búðum á
sitthvorum staðnum tvo daga í röð! Gaman að sjá þig samt skvísa 
Alltaf jafn sæt og í formi!!
Annars er alltaf það sama að frétta af mér, vinna, vinna, meiri
vinna og skóli... og mótókross! Jábbs, ég er sko á fullu í því! 
Og stelpur, þetta er það skemmtilegasta ever! Ég á hjól og allan
búnað og keypti mér bíl með krók! Skelli svo bara hjólinu upp á
kerru, aftan í bílinn og bruna í brautirnar! Er farin að keppa og
alles
Þetta er hrikalega erfitt en samt gaman...
Ég er að vinna á leikskóla, læra aðstoðarleikskólakennara
(útskrifast um jólin) og er með 2 fötluð stuðningsbörn um helgar.
Nóg að gera hjá mér... enda líka flutt af heiman og bý ein í
Salahverfinu í Kópavogi! ELSKA AÐ BÚA EIN  vantar bara einhvern
til að hita rúmið! hehe... en hrakfallasögur mínar þar eru svo
grófar að ég þori ekki einu sinni að skrifa þær niður en þær verða
oft að bröndurum á djamminu! fjúff!
En ég vona að fleiri fari að skrifa "ævisögur" svo maður geti nú
fylgst með
Sjáumst sem fyrst! (vonandi að mætingin verði betri en áður)
Kv. Freyja
»
13.06.2006 22:35:36 / fjola
jæja ætli mar stingi ekki einni færslu
svona inna á þetta blessaða blogg svona til að sýna
eitthverja virkni 
Hjördís ... þetta eindæmis óheppni hlýtur bara að
vera undanfari eitthver góðs.. nema kannski þetta sé ár ólukkunar..
enda hefur mér sjálfri ekki fundist árið hafa byrjað með
góðu!
Af mér er nú ekki mikið að frétta annað að ég er
enn þá í köben í CBS, að klára annað árið af 3 í bs-num í
hagfræðinni minni og heimspekinni.. orðin alveg alfróð um siðfræði
og móral heheh! Enda nýbúin að skila af mér 70síðna verkefni um
corporate social responsability (csr) þar sem Novo Nordisk var
tekið sem case. Búin að vera annsi upptekin af skólanum enda
stofnaði handboltaklúbb og hóstaði ráðstefnu.. m.a.
Núna á ég bara eftir að verja verkefnið mitt og
þá er ég komin til Íslands..Jeij! þar sem ég ætla eimitt að vera í
sumar.. Mér var boðin vinna í Landsbanknum sem ég ákvað að taka
enda ekki slæmt að vera með eitthverja námstengda starfsreynslu.
Þannig ég kem 27 júní og verð heima til 22 ágúst þegar ég fer til
Minneapolis þar sem ég mun taka 5önnina mína í skiptinámi hjá
Carlson School of Management, (business-skólinn hjá University of
Minnesota)
svo er bara landsmótið hjá hestmönnunum og eyjar
komið á skemmtidagskránna...eins og Hjördís var að tala um
.. þá ættum við kannski að smala saman í eitthverja
reunion með bleikum drykkjum og miklu áfengi 
annars þá langaði mig að óska henni Heiðu okkar
.. sem greinilega er að gera það gott með að halda sér í
formi og vera sæt, með að vera silfur prada prinsessa !

»
13.06.2006 14:17:05 / hjordis
Hæ,hó! 
Ég er sko aveg sammála þér Ásthildur mín, ég vil ekki að þessi
síða deyi í fæðingu.... Ef illa fer þá verður þetta bara persónuleg
bloggsíða fyrir okkur tvær þar sem við virðumst vera þær einu sem
skrifa á þetta blogg Ef einhverjar ykkar eruð enn að pæla
hvernig þið komist inn á þetta þá er Ásthildur búin að skrifa
leiðbeiningarnar í comment við einhverja færsluna hérna á
undan.
Af mér er annars bara allt slæmt að frétta eða þannig.....
óheppnin virðist elta mig á röndum þessa dagana og það virðist bara
ekkert gagna upp hjá mér. Svo ef einhver ykkar ber ábyrgð á
þessum óförm mínum þá bið ég viðkomandi vinsamlegast að hætta að
hugsa illa til mín... þetta er komið nóg! Þessi
óheppni/klaufaskapur byrjaði fyrir ca. 2 vikum, nánar tiltekið á
kosningadaginn og hefur haldið áfram síðan. Ég er ekkert að grínast
með þetta, það er allt í volli í vinnunni og svo er hér að neðan
bara rétt topp 10 listinn yfir pirrandi og dýra hluti sem hafa
komið fyrir mig á síðustu 2 vikum.
1. Ég varð lasinn
2. læsti mig úti
3. braut gleraugun mín (30.000 kall farinn þar )
4. datt í Úlfljótsvatn
5. þurfti að keyra hvalfjörðinn á leiðinni Norður þar sem göngin
lokuðust 5 mín. áður
en ég kom að þeim
6. það var dauðsfall í fjölskyldunni
7. Ég keypti mér maskara og augnskugga og skildi það óvart eftir á
kassanum og svo
var einhver búinn að stela þessu þegar ég kom
tilbaka
8. Ég reif uppáhalds buxurnar mínar
9. var tekin af löggunni (annar 30.000 kall farinn þar )
10. og fékk stöðumælasekt
Án gríns finnst ykkur þetta sanngjarnt, ég bara spyr? .... En ég
held að þetta hafi allt klárast á laugardaginn, ég a.m.k. rétt vona
það, ég hef ekki efni á meira svona veseni. En allavegnana
dúllurnar mínar, biturleikahorni Hjördísasr er lokið í bili og ég
vona að einhver ykkar hafi skemmtilegri sögu að segja en ég!

bless í bili HMÓ 
»
12.06.2006 21:03:01 / Asthildur
Jæja, ég ákvað nú bara að smella inn svona eins og einni
bloggfærslu... bannað að láta síðuna deyja í fæðingu. Nú er víst
komið sumar (reyndar ekki ef maður tekur mið af blessuðu veðrinu)
og tími til þess að sletta úr klaufunum, vinna sér inn smá pening
fyrir veturinn og njóta lífsins.
Ég er að vinna í Sparisjóði Vélstjóra sem staðsettur er í
Borgartúni (á móti Höfða) og líkar mér mjög vel í vinnunni. Á
föstudaginn var konukvöld í vinnunni sem heppnaðist geðveikt vel,
en hjálpartækjakynning frá Adam og Evu sló heldur betur í gegn
Það var frekar fyndið að sjá konur á aldrinum 35-50 (svona vel
flestar) uppgötva þennan heim, en það fór nánast enginn tómhentur
heim þetta kvöldið.
Á milli þess sem ég er í vinnunni og sofandi, þá er maður bara
að hitta vini og vandamenn og er ég óðum að endurheimta vinina frá
útlöndum, en það virðist sem svo að einhver útþrá hafi gripið um
sig meðal fólks. Ég ætla þó að bíða með það þangað til í haust að
skreppa til útlanda, en þá er í plönunum stelpuferð til Köben með
Þórdísi vinkonu minni. Svo reynir maður að vera duglegur við
strandblakið, enda væri það nú slæmt að missa allt niður um sig í
blakinu vegna sumarleyfis... það dugar ekkert minna næsta vetur, en
að endurtaka sigurgöngu síðasta vetrar (þar sem Íslands- og
bikarmeistaratitli var landað). Vonandi gengur það bara eins og í
sögu. Samt væri maður alveg til í að geta spókað sig á stuttbuxum
og bol í strandblakinu, en í síðustu viku var ég í flíspeysu, síðum
buxum, með trefil og eyrnaband... not exactly beach like Svona er
víst Ísland í dag.
Svo má ekki gleyma djamminu, en planið er að skemmta sér
konunglega í sumar!
Ég vil svo bara hvetja ykkur allar til þess að koma með innlegg
hérna inn (má alveg vera jafn boring og ég um mig frá mér til mín
færslurnar sem ég virðist oftar en ekki enda í).
Kv, Ásthildur (kennd við Gunnar)
»
28.05.2006 22:51:25 / karen
Langaði bara að prófa dúllurnar
mínar
Ég sem sagt kemst inná
þetta
»
23.05.2006 10:06:44 / hjordis
Sælar beauties! 
Þá er komið að því Ungfrú Ísland á morgun. Ég er komin með 11
miða svo það ættu allir sem vilja að geta komið með. Við ætluðum að
hittast á undan á kaffi Oliver kl. 20:15 og þær sem vilja geta
fengið sér eitthvað gott að borða en þær sem vilja það ekki geta
bara fengið sér bjór eða eitthvað. Endilega mæta tímanlega
ef þið ætlið að fá ykkur eitthvað!
Hverjar ætla að mæta á Oliver og hverjar bara beint á keppnina?
Láta vita hvða þið ætlið að gera!!! Ég ætla ekki að vera þarna ein
eins og bjáni ef enginn ætlar að mæta ... þá hitti ég ykkur bara
í anddyrinu á Broadway, húsið opnar 21:30. 
Sjáumst sætu!
Kv. Hjördís María 
»
17.05.2006 11:01:25 / hjordis
Jæja þá er komið að næsta hittingi en það er hópferð á Ungfrú
Ísland 2006. Koma svo stelpur við verðum allar að mæta....... við
getum öfundað þær fyrir að fá að dansa svona mikið, veðjað um
úrslitin, séð kjólinn frá Tyson, verið með dólgslæti og ég veit
ekki hvað og hvað. 
Þær sem ætla
pottþétt að koma eru: Ég, Ásthildur², Þórdís og Freyja. Ég heyrði í
Aðalheiði og hún var að velta því fyrir sér að koma og þá líklega
Brynja með henni. Svo geri ég fastlega ráð fyrir því að Karen verði
á svæðinu þar sem frænka hennar er að keppa og örugglega Sigrún þó
hún verði líklega ekki með okkur heldur eitthvað að stússa
fyrir Skja einn eða Elínu. Það er þá spurning með ykkur sem eruð á
klakanum og ekki búnar að láta vita, Ástrós, Ása, Ingibjörg, Steina
og Tinna... ætlið þið að koma með? (Það er svo líka spurning
hvort að þær viti af þessari síðu, er einhver búinn að tékka á
því?? )
Eigum við að gera
eitthvða skemmtilegt á undan eins og við gerðum fyrir Ungfrú
Reykjavík eða bara hittast á staðnum? Væri ekki gaman að hittast
aðeins á undan og slúðra? Mér datt í hug að við myndum bara hafa
þetta eins og síðast og fá okkur eitthvað að borða á undan. Hvað
segið þið um það? Viljið þið fara aftur á Vegamót eða eigum við að
skella okkur á Oliver? Við getum þess vegna farið á Ask en hann er
náttla mjög nálægt Broadway svo það er ekki langt að fara eftir
matinn? 
Byrjar keppnin
ekki kl.22:00?? Ef hún gerir það þá hlítur húsið að opna 21:30 og
þar sem við erum nú ekki stundvísasti hópurinn á landinu er þá
ekki ágætt að hittast kl.19:30. Þá höfum við tvo tíma til stefnu og
þá er vonandi stærstur hlutinn mættur kl.20:00 Hvað segið þið um
það?
Þórdís það er þá
spurning hvort að þú reynir ekki að redda ca. 12 miðum. Það ætti
held ég alveg að vera nóg þar sem það nægir fyrir okkur öllum sem
eru á landinu mínus Karen og Sigrún en ég er nánast pottþétt á því
að þær verða þarna ... þá erum við ekki að taka allt of mikið af
miðum.
Allar svo að reyna
að koma þessari síðu á framfæri við þær sem ekki eru búnar að
kommenta á hana. Svo þurfa nú fleiri en ég og ásthildur að fara að
skrifa hérna….. þetta átti ekki að vera eitthvða einkablogg okkar
Ásthildar. Segið okkur frá því sem þið euð búnar að vera að
gera síðustu 2 árin, búsetu, hjúskaparstöðu o.sfrv. o.s.frv.
En þetta er nóg
kjaftæði frá mér í bili……. Sjáumst hressar næsta miðvikudag.
Kv. Hjördís María

»
12.05.2006 00:26:34 / Asthildur
Jæja elsku bjútísveppirnir mínir!
Ég, Ásthildur, ætlaði nú að vera löngu búin að smella
einhverju hérna inn, var meira að segja búin að lofa Hjördísi að
semja eitthvað ruglumbull til þess að birta hér, en eins og sumir
vita (og/eða muna) þá er nú aldrei langt í bullið á mínum bæ En
ég er nú bara upptekin við að vera fátækur námsmaður í
stjórnmálafræði, fimleikaþjálfari og ofurblakari (nýkrýndur
Íslandsmeistari í blaki hér á ferð ). Þess á milli sinnir
maður vinum og vandamönnum af alúð og reynir að skella sér á
einstaka tjútt. Nóg um mig, en það væri gaman ef að þið mynduð
smella inn smá preview af því sem að þið eruð að bralla.
Ég er svo græn að ég er nánast ekki með nein e-mail, en öll
netföng og símanúmer urðu eftir á Verzló póstinum mínum sem að er
fyrir löngu lagstur inn á elliheimili og orðinn óstarfhæfur. Þess
vegna væri frábært að fá e-mailin hjá ykkur í comments svo að það
sé hægt að bæta ykkur við stjórnkerfið hérna.
Núna á síðustu keppni komu upp skemmtilegar hugmyndir um að
skella sér bara aftur í keppnina, taka svona "Helgu Dýrfinnu
comeback" á þetta... Þetta er ágætis hugmynd í sjálfu sér og væri
maður alveg til í að taka þátt í svona flippi, en ég held að ég
myndi seint taka aftur þátt í svona, enda ekki alveg minn tebolli
og er ég ekki frá því að fröken Dísa í World Class myndi ekki kæra
sig um annað stk. af Ásthildi, a.k.a. "ég fer sko ekki í megrun".
Ætli hún yrði ekki gráhærð á staðnum En við Hjördís hlógum nú
mikið að þessari hugmynd og væri ég alveg til í að sjá svipinn á
þeim þegar hópur af föllnum fegurðardísum myndi mæta á Broadway til
að fara í prufu! Sjáum til með það...
En eins og Hjördís kom inn á í færslunni sinni, þá er þetta
góður staður til þess að fá útrás fyrir biturleika, aukakíló o.fl.
Mér þykir nú bara vænt um mín kíló og hef varðveitt þau af mikilli
alúð. Það er neflinlega svo sniðugt að fara í svona keppni og
sleppa "grenningarpartinum" og þá fitnar maður ekkert eftir
keppnina, mjög hagkvæmt
En nóg komið að þvaðri, ég ætla að skella hérna inn linkum á
bloggsíðurnar okkar og myspace síðum ef að einhverjar eru í þeim
bransanum. Ég er með slóðirnar að síðum hjá Þórdísi,
Fjólu, Freyju, Matthildi og Karen. Ef einhverjar aðrar eru með
síður eða vitið um einhverjar aðrar, þá endilega smella þeim inn
hérna í comments. Svo væri frábært
ef einhverjar eiga myndir af keppninni einhvers staðar í
pokahorninu. Myndavélin hjá mömmu og pabba varð
batteríslaus 10 mín eftir að þau mættu á Broadway... good timing
Hjördís lenti svo í álíka veseni með sína vél, þar sem að slatta af
myndunum eyddust út af vélinni. Það mætti því halda að manni væri
ekki ætlað að eiga myndir af þessu!
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni, enda orðið að
ágætri langloku. Ætla ekki allar sem eru á landinu að mæta á Ungfrú
Ísland? Vonandi er Þórdís til í að taka það að sér að hafa samband
við Elínu og fá miða, eins og hún gerði svo snilldarlega fyrir
Ungfrú Reykjavík um daginn
Kv, Ógeðisbarnið 
»
Síður: 1 2
|
|